Hér ráða Egill og Gummi
Í uppáhaldi hjá okkur
12.07.2007 22:43:11 / Egill

Hæ, eða þannig.

Heil og sæl, lesendur. Ég ætla að gleðja ykkur með þeim gleðitíðindum að ég ætla að skrá færslu. Annars verður örugglega ekki mikið um færslur en kannske að ég galti inn færslum öðru hverju þegar nær dregur vetrinum og tekur að hausta. Aldrei að vita nema maður muni þá geta sagt frá einhverju merkilegu, ekki bara blogg um ekki neitt, eins og ég geri nú oftast.

Annars er ég bara að að njóta sveitasælunnar, hafa það gott og (vonandi) raka inn peningum. Það er drullufínn andskoti. Og frábært að sleppa í sláturhúsið öðru hverju og baða sig í draumkenndum ljóma þessa frábæra vinnustaðar.

Ég nenni ekki þessu rugli.

Þetta er kýr.Þetta er myndarskepna, ekki satt?

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 19:04:56 / Egill

Sumar!

Heil og sæl. Sumarið er að halda innreið sína í fjörðinn með öllu tilheyrandi (sauðburði, skólaslitum, menntskælingum o.fl.). Það er alveg einstaklega gaman að þessu fyrirbrigði sem sumarið er. Enda er vetur, haust< sumar,vor. Það verður ,,tekið áðí” í sumar, og brjálast í vinnunni því vinnan hún göfgar og bætir hvern mann. Eitt annað athyglisvert atriði við sumarið er að Kári göltur kemur heim. Ég hef íhugað þann möguleika að þykjast ekki þekkja hann og segjast ekki eiga bróður þegar hann kemur. Það væri náttúrulega ekkert nema gaman að því og þá hefði maður eitthvað að rifja upp eftir 65 ár eða svo þegar maður er orðinn gamall karlfauskur, ég get ekki beðið.

 Á dögunum hélt 10. bekkur í ferð til Danmerkur og lukkaðist hún vel. Eins og glöggir lesendur vita þá er þessi bloggari ekki framtakssamur og ætlar að stikla á stóru varðandi hina mögnuðu ferð.

Það skemmtilegasta er líklega heimsóknirnar í Tivoli og Bakken, ekki síst vegna góðs félaga míns Gunnars Karls sem var ekkert yfir sig hrifinn af öllum tækjunum og lét skoðanir sínar í ljós með ýmiskonar hrópum og skrækjum. Hann fær + í kladdann fyrir þá frammistöðu. Annars var líka alltaf gaman á gistiheimilinu og mikið hlegið. Alltaf jafn fyndið að rassa rúmin hjá hvorum öðrum, og alveg ótrúlegt hversu mikið er hægt að hlæja yfir jafn einföldum hlut og að spila Olsen Olsen með sebrahestagrímur(ATH ekki Stefán Grímur). Mesta eftirsjáin er samt að hafa ekki verið nógu asnalegur í Danaveldi, sem er nú einu sinni tilgangur ferðarinnar. En ég og nokkrir aðrir bjálfar eru nú að fara aftur þannig að það er aldrei að vita nema að maður geti reddað því.

Annars nenni ég ekki að þusa um þessa ferð, þið getið lesið allt um hana annars staðar. Einhverjir hafa kannski tekið eftir ruglinu sem enginn nennir að lesa, en það er bara rugl sem enginn nennir að lesa. Þetta blogg var ekki tómt sýrukjaftæði, eins og bloggin mín vilja verða og ég tel ástæðuna vera þá að ég hef aldrei notað LSD. En hérna er falleg mynd handa ykkur  að hugsa umMynd



» 9 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 23:16:23 / Egill

Sumardagurinn fyrsti?

 

Ég hef ákveðið að heiðra ykkur, ágætu lesendur, með framtaki. Á morgun er sumardagurinn fyrsti, að sjálfsögðu verður stórhríð og skítakuldi. En það er bara gott því ef að sumar og vetur frjósa saman þá veit það á gott sumar. Annars held ég samt að sumar og vetur frjósi bara ansi oft saman án þess að það hafi eitthvað með gæði sumarsins að gera. Annars fáum við hvort eð er örugglega mjög fín sumur héðan af útaf hlýnun jarðar. Önnur skemmtileg staðreynd varðandi sumardaginn fyrsta er að það er frídagur, sem þýðir með öðrum orðum að það er frí á morgun.

Annað er það sem brennur á hjarta mínu, einhverjir lúsablesar, fávitar, og fjörulallar sem ekki hafa vit á þeirri list sem tónlist er, hafa kosið Avenged Sevenfold í skoðanakönnuninni. Það var spurt um hverjir væru bestir. Avenged Sevenfold kæmust ekki nálægt því að hafa framendann þar sem hinar hljómsveitirnar hafa rassgatið. Allt eru þetta hljómsveitir og listamenn sem hafa skrifað nafn sitt með stórum (sums staðar risastórum) stöfum í sögubækurnar fyrir sína tónlist. Avenged Sevenfold er samansafn af hæfileikalausum fávitum sem reyna að rokka en fyrir sitt litla líf, einfaldlega geta það ekki. Grátbroslegar tilraunir þeirra til þess að reyna að koma frá sér tónlist sem venjulegur maður gæti í alvörunni hlustað á, án þess að vera neyddur til þess, eru svo niðurdrepandi að maður hreinlega fer hjá sér og fær hita og grænar bólur við að hlusta á vandræðalega lélegt gaulið. Andskotinn hafi það! Spice girls eru skárri kostur við val á tónlist en þessir apakettir. Fáið ykkur vinnu og hættið að reyna að eyðileggja líf fólks með þessari viðurstyggilegu hljóðmengun sem tónlist ykkar er!

Ef að sá eða sú sem kaus Avenged Sevenfold í könnuninni var ekki að fremja þetta hroðalega illvirki bara til þess að skaprauna mér og er að lesa þetta núna þá hef ég þetta við þig að segja:

Þér eruð flón.

 

Takk fyrir.


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 22:28:17 / Egill

Blogg? Blogg. Blogg? Blogg. Blogg!? Blogg. BLOGG!? Blogg!!!

Þar sem ég nenni ekki að horfa á, örugglega mjög spennandi, mynd um Eiffel-turninn í sjónvarpinu ákvað ég að skella inn einni færslu hérna á vefsetrið. Ég hef svosem ekkert að segja frekar en vanalega en það er ekki aðalmálið að segja eitthvað af viti heldur að segja eitthvað. Ég gerði reyndarmagnaða uppgötvun fyrir ekki svo löngu síðan. Hún er þessi:

Það er að koma páskafrí!


Góðar fréttir þar á ferðinni. Ekki það að ég sé að fara að gera eitthvað merkilegt (frekar en venjulega), ég er ekki einu sinni að fara að gera ekki neitt, sem er nú alltaf mjög skemmtilegt, heldur er ég ekki að fara að gera ekki neitt.

Ég veit ekkert hvað ég er að segja. Ég vil samt benda fólki á nýja og glæsilega skoðanakönnun, og skrifið í helvítis skoðanakjaftæðið.

Bluh...
Elvis:Kóngurinn\


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 21:02:42 / Egill

Í deiglunni

Hérna eru niðurstöðurnar úr hinni glæsilegu skoðanakönnun. Bananarnir virðast hafa unnið sigur í könnununni en þeir fengu rétt tæpan helming atkvæða. Skoda varð í öðru sæti með 17% atkvæða, eflaust hefur það komið einhverjum á óvart, en uppi voru spár um að Skoda myndi alls ekki standast samkeppni við Bubba eða Yoda. En meira kemur þó á óvart að Egill(ég) er með 14% prósent atkvæða. Þykir það nú ótrúlegt að einhver hafi valið þann kostinn. Bubbi og Yoda ráku svo lestina með 9-og 11% atkvæða.

Í uppáhaldi hjá þér er...

Bubbi
9%
Egill
14%
Yoda
11%
Skoda
17%
mér finnst bananar góðir
49%

Gaman að segja frá því, eins og flestir þeir sem þetta lesa vita, að árshátíð Vopnafjarðarskóla
var í gær. Þótti stóra leikritið heppnast með ágætum með glæsilegan dreng að nafni Egill(ég)
í aðalhlutverki.
Jæja, mig er farið að verkja í höfuðið af því að skrifa þetta helvíti. Helvítis bull og kjaftæði
allt saman. En hættið ekki að lesa alveg strax. Í endann vil ég mæla með þessum listamönnum, sem eru að sjálfsögðu The Doors.
The Doors

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 21:07:52 / Egill

OMG! Blogg!

Þar sem ég er ákaflega duglegur drengur að eðlisfari ætla ég að gleðja landsmenn og vonandi heimsbyggðina alla með bloggframtaki. Þetta verður stórbrotið framtak sem ég vona að fylli hjörtu ykkar aðdáandanna af hlýju. Nú vill svo skemmtilega til að vorið er á næsta leiti. En fyrir þá sem það ekki vissu þá er vorið sá tími ársins sem kemur á eftir vetrinum og á undan sumrinu. Þessu fylgir oft betri tíðarfar, þ.e. hlýrra og bjartara.

Senn líður að hinni goðsagnakenndu árshátíð og fínt að hafa eitthvað að gera(æfa), en þurfa ekki að hanga inni í FIFA eða FM, eða, eins og sumir, í World of Warcraft. En eins og ykkur dettur eflaust í hug þá er ekkert lítið bjálfalegt á árshátíðaræfingum með mönnum eins og Símoni og Tómasi.

Gaman að því, en annars held ég að jörðin snúist ennþá um sólina og alheimurinn, sem er heimurinn sem við lifum í, bara í góðu standi. Að minnsta kosti hvað mig varðar. Enda áhyggjur ekki til neins í rauninni og  tilganglaust að hafa áhyggjur af morgundeginum því að hverjum degi nægir sín þjáning, eins og Jesús sagði.

Ég er búinn að fá nóg af bloggi(eða ætti ég kannski að segja bulli?) í bili. Lifið heil,
lifið vel og lifið kristilega.

Ég mæli með Janis Joplin, enda er lag dagsins klárlega Piece of my heart með þessari bestu söngkonu hippatímans.

» 7 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 18:23:54 / Egill

Ótrúlegir hlutir

Ótrúlegir hlutir hafa átt sér stað!

Nr 1a. Ég skoraði mark fyrir Einherja um helgina, meira að segja tvö.

Nr 1b. Ég hef kost á að fara á landsliðsúrtaksæfingu, sem að hljómar eins og súr brandari en er samt sem áður eintómur sannleikur, kemur í ljós hvort ég sjái ástæðu fyrir að fara. Ég er viss um að góðkunningi minn Daníel Smári mun hafa efasemdir um þetta.

Nr 2. Íslendingar salta Danina (þetta hefur reyndar ekki gerst ennþá en mun gerast fljótlega, jafn gott að skrifa þetta bara strax.)

Lag dagsins: All shook up - Kóngurinn, kóngurinn! Elvis Presley! Kóngurinn!

Ég vil enda á því að mæla með Abbey road plötu Bítlanna. Meistarastykki.


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 04:49:35 / Egill

Nýarið.

Ég held ég neyðist samvisku minnar vegna að blogga dulítið, tilvalið er að láta dæluna ganga um hið nýliðna ár, ykkur grunar líklega um hvað ég er að tala, nefnilega árið 2006. En fyrir þá sem vissu ekki af því, þá er það nýliðið. Það voru svokölluð áramót. En þau eiga sér stað árlega, þ.e. á hverju ári, á sama tíma (þótt að það fari að sjálfsögðu eftir því hvar maður er á jörðinni, tíminn er sóðalega afstæður).

Hvað um það, þetta ár hefur verið nokkuð gott. Margt magnað gerst, þó held ég að það magnaðasta sem gerðist á árinu hljóti að hafa verið þegar pelíkaninn át dúfuna. Þið fáfróðu sem vitið ekki hvað ég er að tala um, við ykkur segi ég:
Pelíkani át dúfu, ég sá það í viðtæki sjónvarpsins.
Fyrir utan þann ótrúlega viðburð þá hefur ýmislegt annað gerst, hér er upptalning á því magnaðasta:
Egill Gautason veiddi þrjá laxa einn og óstuddur í Steininum í Hofsá, á einungis 4(eða voru það 5) klukkutímum, og hafði samt tíma til þess að missa einn eftir 45 mínútna baráttu. Það ótrúlega við það var reyndar að ég gaf Bluffa einn laxinn.
...
Fekk(fuck), mér dettur ekkert annað í hug. En þótt að ekkert gríðarlega og yfirþyrmandi ótrúlegt hafi gerst þá hefur þetta verið gott ár. 10. bekkurinn kemur nettur inn. Samt hefur líklega sumarið 2006 verið það magnaðasta, enda veðrið með afbrigðum gott. Áfram hlýnandi loftslag! Og þegar veðrið er gott er fátt betra en að sitja inn í gamla góða Massey Ferguson 135,,,gamla Fegganum", að raka, og vinna fyrir sér á heiðarlegan hátt...þótt að einhverjir séu kannski ósammála þessari fullyrðingu.

Jæja, nú held ég að þessir fjórir sem að lesa bloggið mitt, að mér meðtöldum, séu algjörlega búnir að fá nóg. Adios, eða hvað það var sem maður segir.

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 19:54:55 / Egill

jólajóla

Bloggíblogg.

 Hvers vegna í skotanum er ég ekki í jólaskapi? Stekkjastaur kemur til byggða í nótt og ég er í ruglinu! Ég ætti kannski að fara að hlusta á jólalög, það myndi kannski bjarga mér frá villu míns vegar. Svo eru þessar hlemmibévuðu jólaauglýsingar að ganga af manni dauðum. Alltaf jafn niðurdrepandi að hlusta á öll tilboðin á öllum þeim hlutum sem maður þarf nauðsynlega að eiga, eins og til dæmis salatsett í James Bond stíl eða eitthvað álíka vitagagnslaust. Gaman er að nöldra en ég endist samt ekki lengi í því, enda fátt eins leiðinlegt fyrir utan jólaauglýsingar að hlusta á nöldrið í öðrum, nema það sé Baggalútur. En allt sem þeir frómu snillingar taka sér fyrir hendur virðist einhvern veginn verða að ódauðlegum listaverkum sem standa munu sem minnismerki um aldir alda um ótrúlega hæfileika mannskepnunnar til þess að finna fegurðina í heiminum og temja hana sér til hægðarauka. Ekki ósvipað fremstu snillingum endurreisnarinnar.
... Hvaða rugl var nú þetta? Ég verð jafn steiktur í blogginu og Daníel Smári Magnússon með þessu áframhaldi. Hvort sem það er gott eða vont. Ég tel að einunis ein leið sé til þess að bjarga síðunni frá bráðum dauða, Guðmundur Friðbjarnarson þarf að troða inn einni færslu eða svo. Help me Gummi Wan Kenobi, you are my only hope, hefði einhver sagt. Heljarmenni kallar!

Ég vil meina að þetta blogg sé mesta ruglið sem sést hefur hérna í nokkurn tíma. En hérna í blálokin langar mig til að skella in einni samhverfu:
Súmó-mús. Þ.e. mús sem stundar súmó-glímu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 22:07:17 / Egill

Hugmyndasnautt heljarmenni

Ég er búinn að eiga afar spennandi dag við að berja saman ritgerð um þróunarkenningu Darwins. Hversu glatað er það? Reyndar skánaði dagurinn ansi mikið núna síðast þegar ég borðaði alveg einstaklega bragðgóða pizzu og horfði svo á tæknileg mistök hjá Spaugstofunni. Nú er veðrið búið að vera afar gott síðustu daga og ég bind vonir við að það verði alveg snælduvitlaus á mánudaginn svo að ég sleppi við skólahelvítið.
Eeeen þar sem að ég er alveg afskaplega hugmyndaríkur bloggari ætla ég að herma eftir öllum öðrum, mönnum eins og Konna (porn) og Kára Gautasyni:

Þar sem að tölvan er full af tónlist sem að er drulluléleg ætla ég að nota MP3-spilarann minn í staðinn.

 IF YOUR LIFE WAS A MOVIE, WHAT WOULD THE SOUNDTRACK BE?

 So, here's how it works:
1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
2. Put it on shuffle
3. Press play
4. For every question, type the song that's playing
5. When you go to a new question, press the next button
6. Don't lie and try to pretend you're cool.
Opening Credits: Hammer to fall – Queen. Queen opna þetta með snilldarlagi, líst vel á þetta kjaftæði.

Waking Up: A hard days night – The Beatles. Skrýtið að velja þetta fyrir morgunin, en dagurinn verður örugglega erfiður þannig að þetta passar vonandi bara vel.

 First Day At School: Angie – The rolling stones. Einhver tregi í þessu þarna fyrsta daginn.

Falling In Love: Rock and Roll – Led Zeppelin. Það er aldeilis kvenmaður. Rock og ról bara. Þannig á það að vera.

 Fight Song: Get up stand up – Bob Marley & the Wailers. Það er uppreisnarfílingur í manni núna. Bob Marley stendur fyrir sínu í þessari mynd.

Breaking Up: Stealing my heart – The rolling stones. Á vel við, kerlingarhelvítið hefur stolið hjartanu. Það var kvenþjóðinni líkt.

Prom: It’s only rock n’ roll – The rolling stones. Fjör á þessu balli.

Getting Back Together: Eight days a week – The Beatles. Þetta á bara helvíti vel við þar sem þetta er einhvers konar ástarlag hjá vinum okkar Bítlunum.

Wedding: Rain of a thousand flames – Rhapsody. Haha! Hvers konar brúðkaup á þetta eiginlega að vera?

Birth of Child: Wild horses – The Rolling Stones. Ekki beinlínis rómantískt lag. Hvað ætli kerlingin hafi núna gert?

Final Battle: With a Little Help from my friends – The Beatles. Ringo Starr leiðir okkur í gegnum lokabardagann með sinni engilfögru rödd.

Death Scene: Darling pretty – Mark Knopfler. Ekki spyrja. Knopfler treður sér hérna inn og veður yfir alla á skítugum skónum.

 Funeral Song: Here comes the sun – The Beatles. Jæja, það er bara gaman í jarðarförinni minni og sólin að koma.

End Credits: Keys to your love – The Rolling Stones. Enn og aftur eru það Rollingarnir.

Ég vill meina að þetta sé lélegasta bloggframtakið á þessari síðu hingað til en ég gerði þó að minnsta kosti eitthvað. Þið hafið við engan annan að sakast en ykkur sjálf ef þið lásuð þetta.

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 00:15:31 / Egill

Skólahlaup

Skyndilega var ég gripinn óstjórnlegri löngun til þess að hripa niður nokkur orð niður. Ég er einmitt þegar þessi orð eru skrifuð að gera merkilega uppgötvun; Bob Marley er dásamlegasti og fullkomnasti listamaður 20. aldarinnar. Ég er líka búinn að gera þá uppgötvun að sá sem að ekki hlustar á Bob Marley sé eitt hvert eftirfarandi:
a)Fáviti.
b)Náungi sem hefur sökum fáfræði ekki kynnt sér kappann.
c)Báðir valmöguleikarnir hér að ofan.

En nóg um það, á fimmtudaginn var hið stórskemmtilega norræna skólahlaup haldið hátíðlegt. Fyrir hlaupið slátraði skólastjórinn lambi sem að var síðan étið hrátt eftir 10 km hlaup þar sem þeir sem að máttfarnari voru en aðrir voru hlaupnir til heljar af trylltum og skelkuðum grunnskólanemendum. Eins og þið getið lesið hérna er þetta hlaup alveg dásamleg skemmtun og afar leiðinlegt að ég taki ekki þátt í athöfn þessari aftur...NOTT!*gelgjufliss*. Það magnaðasta við þetta skólahlaup var vafalaust þegar ég átti svona 4. mínútna hlaup eftir og lenti í því basli að hnéð á mér brjálaðist og fóturinn datt af mér við öxl. Ég geri ráð fyrir því að það taki mig svona hálfan mánuð að láta fótinn vaxa aftur. Nóg bullað!!!

-Heljarmennin/ð mæla/ir með hljómskífunni Exodus með Bob Marley & the Wailers.

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 19:38:25 / Egill

Vetrarfrí...hvað er nú það?

Eftir mikinn þrýsting frá Róberti hef ég ákveðið að blogga í annað sinn á afar stuttum tíma. Eftir leiðinlega byrjun dagsins, sem byrjaði þannig að ég vaknaði því miður eftir frábæra skemmtun í draumaheiminum, rættist alveg einstaklega vel úr skóladeginum.         Ekkert var hirt um námsbækur eða annað slíkt. Einungis var hugsað um það að við lærðum sem minnst og skemmtum okkur sem best. Það mætti setja niður fleiri svona vetrarfrí. Líklega undrist þið núna á því hvílíkt endemis kjaftæði er í gangi í grunnskóla Vopnafjarðar en þá vissuð þið ekki að þannig er mál með vexti að nú er vetrarfrí í grunnskólum landsins, en það er uppfinning sem að einhver bjálfi fann uppá. Vetrarfríið virkar þannig að maður fær tveggja daga frí. Sniðugt uppátæki.
    Þetta hefur í för með sér að flestir grunnskólanemendur nota tækifærið og hypja sig burt. Flestallir nema heljarmennið hann ég. Enda er það miklu skemmtilegra að hanga hérna heima og telja á sér tærnar(ég get svarið að þær voru 11 þegar ég taldi áðan!), en að fara eitthvern djöfulinn útí buskann. Frekar ættum við að njóta náttúrunnar, fjallana og bavíana(rugludalla) Vopnafjarðar Eruði ekki sammála?

Ég vill benda öllum þeim sem hugsanlega, fyrir einhverja tilviljun lesa þetta á að kjósa í skoðanakönnuninni.
    Tónlist dagsins: The Who - Won't get fooled again

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 22:18:16 / Egill

Þetta er sko ekta blogg

Jæja lesandi glæsilegur,(þetta segi ég því að ég tel að eini lesandinn verði ég)nú er kominn tími til þessað birta niðurstöðurnar úr skoðanakönnuninni;

Hverjum vorkenniru mest?
Kára fyrir að vera skyldur Agli
 11%
Agli fyrir að vera skyldur Kára
 9%
Erni fyrir að vera skyldur þeim báðum
 80%

WTF!?

Þetta þykir mér vera helvíti hart. Skammist ykkar þið sem að völduð fyrsta eða síðasta kostinn.En snúum okkur að öðru, ég held að ég skrifi einfaldlega leiðinlegar upplýsingar um það sem ég er að bralla. Nú eru þessar þæginda æfingar komnar á fullt og gaman að hafa eitthvað annað að gera en að hanga heima og telja snjókornin fyrir utan gluggann. Það er gaman að segja frá því að í dag er þriðjudagur sem að þýðir það að á morgun þegar ég verð búinn í skólanum þá á ég einungis eftir fimmtudaginn og föstudaginn og þá er heljarinnar frí. Svona pælingar létta
tilveruna og gera lífið skemmtilegt. Þetta vissuð þið ekki...aha!
    Nú er ég búinn að finna nýtt uppáhald í lífinu,það er...matur! Hann er það besta sem ég hef kynnst í lífinu, og svo svefn. Fátt veldur manni meiri vonbrigðum heldur en að vakna á morgnana. Eruð þið ekki sammála? Vel á minnst,ég er farinn að borða og svo að sofa.
Munið að fara með bænirnir ykkar. Heljarmennið er búið í bili.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 16:07:18 / Gummi

Egill skátastelpa

Langt er liðið síðan ég hripaði eitthvað hérna inn. Annars hef ég mikið að segja frá ef við fórum nú eitthvað út í það. Ég get svona byrjaði að skjóta því frá mér að við urðum Íslandsmeistarar í 7-manna bolta ekki fyrir svo alllöngu. Við unnum Skallagrím 5-2 í úrslitaleiknum sem fram fór á Árskógsströnd. Það er nú ekkert meira segja frá því nema að mér heyrðist svona á mannskapnum þarna að síðasta markið hafi verið lang glæsilegast.

  Vinnan í sumar er búin að vera alveg frábær. Vann með Sölva nánast í einu og öllu nema þegar hann var úti á Krít. Þannig að hún var nú alveg dásamlegt að mest öllu leiti.

  Þann 13. september hóf ég göngu mína í Menntaskólann á Akureyri og gengur það svona sæmilega. Heppinn með kennara, bekk o.s.fv.. Ég missti reyndar næstum því af skálaferðinni með bekknum mínum eða ég þ.e.a.s. ég missti af rútunni útaf því að ég fór í VMA-bolta með strákunum en Stebbi karlinn var svo vænn að skutla mér upp í sveit þar sem villinga samkoma var haldin.

 Maður hefur líka eitthvað verið að prófa handbolta hérna fyrir norðan og satt best að segja þá líst mér stórvel á að halda áfram í honum þannig að maður geti komið heim næsta sumar í "súper" formi.

  Stutt lýsing á degi hjá mér er frekar einhæf: Vakna klukkan 07:45 og niður í mat, fara skólann ef maður nennir, koma heim og gera eitthvað af sér, kvöldmatur, æfing og koma svo upp á vist og reyna að sofna ef maður hefur ekkert betra að gera.

Nenni ekki meiru en ætla svona að lokum að óska Agli almennilega til hamingju með að losna við Kára úr landi.

Ástarkveðjur,

           Guðmundur


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 22:44:28 / Egill

Göngur/bróðir minn+3x=réttir í öðru veldi+skóli-fótboltaæfingar (Skrifið svarið í athugasemdunum.)

Jæja, nú er komið haust og göngur og réttir í algleymingi en ég nýt einmitt þeirra forréttinda að þurfa að vakna klukkan 4:30 í nótt til þess að fara að smala í Eyvindastaðaafrétt. Eitthvað var fyrri færslan þarna slappari en hún átti að vera og ég birðst velvirðingar á mistökunum. Mér finnst að ég þurfi að blogga samvisku minnar vegna því að Guðmundur virðist ekki vera á leiðinni til þess. Ég er að minnsta kosti búinn að bíða í tvo mánuði og það er nóg held ég. Nú er skólastarfið á fullu og alltaf jafn sorglegt þegar maður gerir sér grein fyrir því að skólinn er kominn á fullt spýtt. Reyndar er það helvíti hart að fótboltalfingar eru ekki byrjaðar og er það miður.


Líf mitt er einkar spennandi þessa dagana og einkennist aðallega að því að fara tímanlega að sofa og vakna tímanlegar til þess að fara í skólann. Ég held því að þangað til að ég fari að gera eitthvað meira spennandi á daginn verði bloggin mín afar þunn, rétt eins og þetta ætlar að verða. En ég vill nota tækifærið til þess að benda fólki á að lesa ruglið sem systir mín hefur að segja frá Nýja-Sjálandi. Bloggfærslurnar má nálgast á dvergakláminu. Hann hefur sagt mér frá ýmsu merkilegu sem á sér stað þarna á hjara veraldar.Í persónulegu uppáhaldi hjá mér er þegar hann sagðist vera kallaður Casanova af innfæddum og sagði að það væri ekki sér að kenna að kerlingarnar væru alltaf að reyna við sig. Þetta tel ég vera uppspuna frá rótum hjá ástkærum bróður mínum. En þessir Ný-Sjálendingar eru hálfskrýtnir og aldrei að vita nema óaðlaðandi fituhlunkar séu í miklum metum þarna hinum megin á jarðarkringlunni (Þetta er kannski full harðorð lýsing á umræddum aðila en ég geri mitt besta). Þú, lesandi góður (ef einhver les þetta), ert örugglega hættur að lesa eða búinn að fá nóg af því og því ætla ég að hætta undir eins, eftir þessar tilkynningar hér að neðan.

Ég vill  minna alla á það af þessu tilefni að muna eftir því að krossa við Egill í komandi nemendaráðskosningum. Ég vill líka minna ykkur á þá staðreynd að hljómsveitin Bítlarnir(The Beatles) er besta hljómsveit í sögu jarðarinnar og gleymið því ekki að vera duglegir að hlusta á þá.
Ég vill svo að lokum skora á Guðmund Friðbjarnarson að blogga.


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2